Hugbúnaðarverkfræði, MS, 120 einingar

Aðgangskröfur:
  1. BS-próf í hugbúnaðarverkfræði eða skyldri grein með meðaleinkunn 6,5 eða hærri. Þeir sem ekki hafa próf í hugbúnaðarverkfræði þurfa að uppfylla forkröfur sem Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild setur.
  2. Umsækjendur skulu skila stuttri greinargerð (1 bls.) þar sem þeir tilgreina hvers vegna þeir hafa áhuga á þessu námi, markmið með náminu og hugsanlegt viðfangsefni í meistararitgerð.
  3. Öllum umsóknum skulu fylgja meðmæli frá 2 einstaklingum (kennari/yfirmaður) sem þekkja vel til umsækjenda og geta veitt honum skýra umsögn. Umsagnaraðilar þurfa að skila skriflegum umsögnum beint til Háskóla Íslands á netfangið umsokn@hi.is. Ef nemandi er að sækja um áframhaldandi nám í sömu deild þarf ekki að skila skriflegum umsögnum/meðmælabréfum.
Tilhögun náms:
Fullt nám.
Námskröfur:

Ljúka þarf 120 einingum fyrir lokapróf. Skipulagt sem tveggja ára nám. Námið samanstendur af 60 einingum í námskeiðum og 60 eininga rannsóknarverkefni. Velja skal námskeið í samráði við leiðbeinanda eða umsjónarkennara. A.m.k. 30 einingar skulu vera af námsbrautinni (námskeið merkt TÖL, HBV eða REI). Námskeiðin skulu öll vera framhaldsnámskeið, merkt M eða F.

Hæfniviðmið:
Skoða
Kennarar:
Skoða
Aðgangur að frekara námi:
Námið getur veitt aðgang að doktorsnámi.
Starfsréttindi (ef við á):
Að loknu meistaranámi geta nemendur sótt um leyfi til iðnaðarráðherra til að geta kallað sig verkfræðinga. Starfsheitið er lögverndað.