Jarðfræði, MS, 120 einingar
- Fyrsta háskólagráða, BS-próf jarðfræði eða skyldum greinum, með lágmarkseinkunn 6,5 frá Háskóla Íslands eða sambærilegri einkunn frá öðrum háskóla. Auk þess geta verið forkröfur/undirbúningsnámskeið sem verður að ljúka áður en hægt er að hefja meistaranám.
- Umsækjendur skulu skila stuttri greinargerð (1 bls.) þar sem þeir tilgreina hvers vegna þeir hafa áhuga á þessu námi, markmið með náminu og hugsanlegt viðfangsefni í meistararitgerð.
- Öllum umsóknum skulu fylgja meðmæli frá 2 einstaklingum (kennari/yfirmaður) sem þekkja vel til umsækjenda og geta veitt honum skýra umsögn. Umsagnaraðilar þurfa að skila skriflegum umsögnum beint til Háskóla Íslands á netfangið umsokn@hi.is. Ef nemandi er að sækja um áframhaldandi nám í sömu deild þarf ekki að skila skriflegum umsögnum/meðmælabréfum.
Tveggja ára rannsóknartengt framhaldsnám í jarðfræði við Jarðvísindadeild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands. Skipulagt sem 2ja ára nám. Námið er 120 ECTS einingar á stigi 2.2 og er fullgilt próf til prófgráðunnar magister scientiarum, MS. Umfang rannsóknarverkefnis skal vera 60 ECTS einingar og námskeið eða annað nám 60 ECTS einingar. MS-prófið uppfyllir skilyrði fyrir aðgangi að doktorsnámi á 3. þrepi.
Tegund þekkingar
Að nemandinn hafi mikilvæga vitneskju um vandamál og viðfangsefni, byggða á nýjustu upplýsingum og rannsóknum á sviði jarðfræði.
Að nemandinn hafi tileinkað sér þekkingu með námskeiðum og rannsóknum á sérhæfðu sviði innan jarðfræði.
Þekking, hæfni og færni
Við lok meistaraprófs skal nemandi hafa náð eftirfarandi viðmiðum til viðbótar þeim er náð var af fyrra stigi:
1. Þekking og skilningur
1.1. Nemandi hefur breikkað og dýpkað þekkingu sína á völdu fræðasviði innan jarðfræða og öðlast kerfisbundinn skilning á nýjustu þekkingu á því sviði og rannsóknaaðferðum sem þar er beitt.
1.2. Nemandi hefur öðlast dýpri þekkingu á hagnýtingu jarðfræðinnar á viðkomandi sviði.
1.3. Nemandi kann skil á helstu aðferðum og tækjum sem nýtast sérsviði hans innan jarðfræði.
1.4. Nemandi getur nýtt þekkingu sína og skilning í faglegri vinnu á sínu sviði.
1.5. Nemandi hefur öðlast hæfni til að rökræða um rannsóknavinnu sína og tengsl hennar við þekkingargrunn rannsóknasviðsins.
1.6. Nemandi hefur öðlast hæfni til að gefa í rituðu máli yfirlit yfir rannsóknir sem tengjast áherslusviði hans.
2. Hagnýt færni og hæfni
2.1. Nemandi getur hannað, skipulagt, þróað og framkvæmt rannsóknir úti í náttúrunni og tilraunir á rannsóknastofu.
2.2. Nemandi þekkir öryggisreglur um vinnu á sínu sérsviði.
2.3. Nemandi getur skrifað rannsóknaáætlun og styrkumsóknir.
2.4. Nemandi getur sett saman og þróað viðeigandi aðferðir í jarðfræði í því skyni að svara rannsóknaspurningum á sínu sérsviði.
2.5. Nemandi getur lýst og skýrt grundvöll og takmörk helstu aðferða sem beitt er á sérsviði hans.
2.6. Nemandi hefur gott vald á notkun helstu rannsóknatækja sem notuð eru við rannsóknir á sérsviði hans.
2.7. Nemandi getur starfað með öðrum og lagt sitt af mörkum við skipulag og framkvæmd rannsókna í jarðfræði.
2.8. Nemandi hefur sýnt að hann getur haldið skilmerkilegar skrár yfir rannsóknavinnu.
2.9. Nemandi getur beitt tölfræðilegum aðferðum sem við eiga í rannsóknavinnu hans.
2.10. Nemandi hefur sýnt hæfni til að gefa í rituðu máli yfirlit yfir rannsóknir sem snerta meginrannsóknasvið hans.
2.11. Nemandi getur ritað vísindalega ágrip, greinar og skýrslur.
3. Fræðileg hæfni
3.1. Nemandinn sýnir frumkvæði og getur með sjálfstæðum og faglegum hætti skilgreint rannsóknaviðfangsefni, sett fram rannsóknaspurningar og tilgátur.
3.2. Nemandi getur sett fram nýjar tilgátur sem snerta eigin rannsóknaviðfangsefni.
3.3. Nemandi getur metið sjálfstætt hvenær mismunandi aðferðir eiga við sem og nálgun að greiningu og rannsókn á vandamálum.
3.4. Nemandi getur skilgreint og lýst hvað felst í góðu skipulagi og hönnun tilrauna.
3.5. Nemandi getur notað viðeigandi tæki til gagnaúrvinnslu, þar á meðal viðeigandi hugbúnað.
3.6. Nemandi hefur öðlast aukinn og dýpri skilning og víðtækari yfirsýn yfir sérfræðisvið sitt en fólst í námi á fyrsta þrepi.
4. Hæfni í samskiptum, miðlun og upplýsingalæsi
4.1. Nemandi getur skipulagt vinnu sína og vinnutíma, lokið skýrslugerð tímanlega, unnið faglega með samstarfsfólki, skrifað ferilskrá og gert sér grein fyrir möguleikum við störf og rannsóknir.
4.2. Nemandi sýnir hæfni í notkun upplýsingatækni, þar á meðal notkun fagtímarita, gagnagrunna, töflureikna, tölfræðipakka, framsetningu gagna og niðurstaðna í ræðu, riti eða á vef.
4.3. Nemandi getur átt frumkvæði að rannsókna- og þróunarverkefnum á sínu sérsviði.
4.4. Nemandi getur stýrt afmörkuðum verkefnum á sínu sérsviði og borið ábyrgð á vinnu einstaklinga og hópa.
5. Almenn námshæfni
5.1. Nemandi hefur þróað með sér nauðsynlega námshæfni og sjálfstæð vinnubrögð til að geta tekist á hendur frekara nám, viðhaldið þekkingu sinni og aukið við hana. Hann er reiðubúinn að hefja nám á þriðja stigi til doktorsprófs.
Alberto Caracciolo nýdoktor.
Andri Stefánsson prófessor.
Ármann Höskuldsson rannsóknaprófessor.
Árný Erla Sveinbjörnsdóttir vísindamaður.
Áslaug Geirsdóttir prófessor.
Bryndís Brandsdóttir fyrrverandi vísindamaður.
Brynhildur Davíðsdóttir prófessor.
Catherine Rachael Gallagher nýdoktor.
Cécile Adélie Ducrocq .
Claudiu-Eduard Nedelciu stundakennari.
Diego Ignacio Toro Vivanco .
Edward Wayne Marshall nýdoktor.
Einar H Guðmundsson prófessor emeritus.
Eniko Bali prófessor.
Esther Ruth Guðmundsdóttir prófessor.
Eyjólfur Magnússon vísindamaður.
Eymundur Sigurðsson .
Finnur Pálsson verkfræðingur.
Freysteinn Sigmundsson vísindamaður.
Gabrielle Stockmann .
Guðfinna Th Aðalgeirsdóttir prófessor.
Guðmundur Heiðar Guðfinnsson fræðimaður.
Guðni Axelsson .
Guðrún Þorgerður Larsen fræðimaður.
Gunnar Þór Gunnarsson .
Gylfi Páll Hersir .
Halldór Geirsson dósent.
Hannah Iona Reynolds nýdoktor.
Hreggviður Norðdahl fræðimaður.
Huginn Freyr Þorsteinsson stundakennari.
Ingibjörg Jónsdóttir dósent.
Iwona Monika Galeczka nýdoktor.
Ívar Örn Benediktsson vísindamaður.
Jón Ólafsson prófessor emeritus.
Jónas Ketilsson .
Kristín Jónsdóttir .
Kristín Vala Ragnarsdóttir prófessor.
Magnús Tumi Guðmundsson prófessor.
Maja Bar Rasmussen .
Marta Rós Karlsdóttir .
Maud Johanneke Smit .
Muhammad Aufaristama stundakennari.
Páll Einarsson prófessor emeritus.
Quinten H. Adriaan Van Der Meer .
Rúnar Unnþórsson prófessor.
Sigrún Nanna Karlsdóttir prófessor.
Sigurður M Garðarsson forseti fræðasviðs.
Sigurður Reynir Gíslason rannsóknaprófessor.
Sigurrós Arnardóttir .
Siqi Li .
Steffen Mischke prófessor.
Sæmundur Ari Halldórsson vísindamaður.
Utra Mankasingh .
Vala Hjörleifsdóttir .
Þorsteinn Þorsteinsson .
Þorvaldur Þórðarson prófessor.
Þóra Ellen Þórhallsdóttir prófessor.
Þröstur Þorsteinsson prófessor.